Bótaflokkar

Við erum sérfræðingar í skaðabótarétti. Bótaréttur fer eftir hvers konar slys eða tjón viðkomandi varð fyrir. Í slysamálum er lykilatriði er að leita strax til meðferðaraðila og tilkynna slys sem allra fyrst. Í öðrum bótamálum borgar sig einnig að tilkynna tjón við fyrsta tækifæri.

Skaðabótamál og slysabætur eru okkar sérfag

Umferðarslys

Hafir orðið fyrir áverkum eftir að hafa lent í umferðarslysi, hvort sem um er að ræða bílslys eða árekstur átt þú líklega rétt á bótum.

Vinnuslys

Starfsmenn fyrirtækja eiga öllu jafna bótarétt vegna slysa sem verða á vinnutíma eða á leið til eða frá vinnu, verði þeir fyrir tjóni. 

Slys á sjó

Þeir sem slasast við vinnu sem sjómenn eiga ríkan bótarétt óháð aðstæðum slyss. Sjómenn eru vel tryggðir fyrir slysum hjá tryggingarfélögum.

Slys í frítíma

Hafir þú eða fjölskyldumeðlimur orðið fyrir slysi í frítíma kann bótaréttur að vera til staðar úr frítímaslysatryggingu sem hluta af heimilistryggingu fjölskyldunnar.

Fasteignagalli

Kaupendur að fasteignum sem eru haldnar galla geta átt rétt á skaðabótum og/eða afslætti af kaupverði vegna fasteignagalla.

Líkamsárásir

Líkamstjón af völdum árásar eða annarrar refsiverðar háttsemi er yfirleitt bótaskyld. Sá sem verður fyrir refsiverðu broti þarf að leggja fram kæru og bótakröfu til lögreglu.

Læknamistök

Mistök við læknismeðferð eða aðgerðir sem leiðir til tjóns getur verið grundvöllur fyrir því að eiga bótarétt.

Annað tjón

Ýmis önnur tilvik geta leitt til þess að fólk eigi bótarétt, svo sem, líf- og sjúkdómatryggingar, ólögmætar þvingunaraðgerðir lögreglu, handtaka svo dæmi séu nefnd.

Scroll to Top